Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Helgi Kristjánsson
  • Stađur: Reykjavík
  • Um mig: Ég er fćddur og uppalin í Ólafsvík og er mikill stuđningsmađur Víkings Ó., Vals og Ipswich í enska boltanum. Hef mikinn áhuga á fótbolta, golfi, músik og mörgu fleiru.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Könnun

Hvađ vinnur Valur Pepsídeildina međ miklum mun?

Leit

Pepsídeildin í kvöld.

24. maí 2012 klukkan 18:40
Það sagði góður maður við mig einu sinni að ef ég hef ekkert að skrifa þá skrifaðu bara eitthvað bull. Það er betra að lesa það og sjá að síðan er lifandi en að ekkert sé skrifað. Það er það sem ég er að gera núna. Ég veit ekkert hvað ég á að skrifa en það er leikið í kvöld í Pepsídeildinni og er þá ekki bara best að bulla eitthvað um þá deild.

Í gær spiluðu KR og FH. KR vann þar frekar sanngjarnan sigur að mínu mati. En tvö atriði voru umdeild í leiknum. Átti FH að fá víti þegar Guðmundur Reynir Gunnarsson slæddi hendinni í boltann fyrir ofan haus. Mitt svar er já. Mér fannst þetta eiga að vera víti. Mér fannst að þessi handleikur tæki möguleikann af Atla Viðari Björnssyni til að ná til boltans og markið blasti við. Hitt atriðið er hvort að Kjartan Henrý Finnbogason (Kjartanssonar bassaleikara suðurnesjabanda) hafi skorað eða hvort Gunnleifur Gunnleifsson (Kjartanssonar Ólsara) hafi gert sjálfsmark. Ég er á því að þetta hafi verið sjálfsmark.

Í kvöld eru fimm leikir og er ég að bíða eftir þeim. Veðrið er leiðinlegt og Eurovision á eftir. Hvað gerir maður? Fer maður á stúkulausan Fylkisvöllinn og horfið á hitt liðið sitt eða horfið maður á Eurovision með fjölskyldunni? Fylkisvöllurinn togar í mig. Ég held að Valur vinni þennan leik. Allavegana vona ég það. Ég ætla að spá 0-2 fyrir Val og að Matar Nesta Jobe skori fyrra markið með skalla eftir hornspyrnu, eins og hann gerði fyrir Víking Ó og að Brynjar Kristmundsson skori seinna markið beint úr aukaspyrnu rétt utan vítateigs. Hann á að taka aukaspyrnurnar á því svæði fyrir Val. Verst að Kristján Guðmundsson og hans aðstoðarmenn eru ekkí búnir að fatta hve góður aukaspyrnusérfræðingur hann er! 

Maggi Gylfa mætir með ÍBV liðið til Keflavíkur í kvöld. Þetta er erfiður leikur fyrir ÍBV. En ég ætla að spá því að ÍBV vinni þennan leik 0-1 með marki Brynjar Gauta Guðjónssonar. Þeir verða að vinna leik áður en þeir mæta til Ólafsvíkur því þar fær Maggi Gylfa góðar móttökur utan vallar en ekki innan vallar.

Breiðablik mætir Fram á sínum heimavelli. Blikarnir eru ráðalausir hvað varðar markaskorun og ef mörk koma ekki reglulega missir liðið trú á sér. Frammarar eru í sárum eftir slæma byrjun. Byrjun sem engin innan knattspyrnuhreyfingarinnar átti von á. Þeir verða að fara að vinna leik. Það sama á við Breiðablik. Ég spái því að það lið sem tapar þessum leik muni falla í haust eða allavegana vera í botnbaráttunni í allt sumar. Ég spái því að leikurinn endi 1-1.

Á Selfossi mætast heimamenn og Grindavík. Sama með þessi lið eins og Fram og Breiðablik að ég spái því liði sem tapar þessum leik bullandi fallbaráttu og jafnvel falli. En samt er ég frekar á því að Selfoss bjargi sér frekar ef þeir tapa þessum leik. Þessi leikur verður mikil skemmtun fyrir áhorfendur og reikna ég með því að Selfoss vinni að lokum 3-2 með mjög umdeildu marki á lokamínútunum og allt verður vitlaust eftir leik. Sigurmark Selfoss verður keimlíkt einu marki þeirra gegn Víking Ó síðasta sumar þegar sóli eins leikmanns þeirra fer næstum því niður í vélynda á einum leikmanni andstæðinganna. Selfyssingurinn Babacarr Sarr sem gerir markið þarf ekki að þvo skóna sína eftir leikinn því tunga grindvíkingsins sá um það.

Í Garðabænum mætast Stjörnumenn og Skagamenn. Þarna tel ég öruggt að ÍA tapi sínum fyrsta leik í sumar. Ég held að Stjarnan rúlli þeim upp á "teppinu" og að Sindri Már Sigurþórsson skori eitt af mörkum þeirra. ÍA mun síðan rísa upp í næsta leik og vinna hann örugglega nema þeir mæti Val því þar eiga þeir ekki sjens.

Nú er ég búinn að upplýsa ykkur um úrslit kvöldsins svo þið getið farið í bíó. Einnig er óvitlaust að kaupa sér einn Lengjumiða og græða smá pening í boði Helga Kristjánssonar!!!!!!!

Þá er ég búinn að bulla smávegis og það styttist í leikina.

1.deild. Víkingur Ó - Höttur

23. maí 2012 klukkan 18:11
1.deild
Ólafsvíkurvöllur
Laugardaginn 26.maí kl. 14.00

Víkingur Ó - Höttur

Á laugardaginn kemur spilar Víkingur Ó sinn þriðja leik í deildinni í ár. Mótherjinn er Höttur frá Egilsstöðum. Þeir eru nýliðar í deildinni líkt og síðustu mótherjar okkar í Tindastóli. Byrjunin þeirra í mótinu er frábær. Unnu Þrótt R í fyrstu umferð og síðan tóku þeir stig að reynslumiklu liði Haukanna á heimavelli. Næst liggur leið þeirra þvert yfir landið til Ólafsvíkur og nú þurfa leikmenn Víkings Ó að sýna okkur úr hverju þeir eru gerðir. Ég tel nefnilega að lið Hattar sé miklu miklu sterkara en menn halda.

Þjálfarinn þeirra er Eysteinn Húni Hauksson sem spilaði lengi með Grindavík í efstu deildinni og fleirum liðum og er hann mjög metnaðarfullur þjálfari. Hann er að gera Hött að virkilega góðu liði sem við verðum að passa okkur á.

Það er viðbúið að þeir liggji til baka gegn okkur og beiti skyndisóknum. Það myndi þýða það að við yrðum meira með boltann inná þeirra vallarhelmingi og gætum lent í því að þurfa að opna mikinn varnarmúr. Hvernig eigum við að fara að því? Það er mjög gott fyrir leikmennina að "spila" leikinn í huganum áður en hann byrjar t.d. kvöldið áður og leita svara við öllum þeim vandamálum sem gætu komið uppá og finna lausnir. Dæmi að ef fyrirgjafirnar eru allar skallaðar frá, að byrja þá senda lága bolta. Ef það gengur ekki reyna þá að brjótast upp vængina og senda þaðan bæði lága og háa bolta fyrir markið. Einnig er hægt að finna út hvar veikleikarnir eru í vörninni og keyra á þá, t.d. á milli bakvarðar og miðvarðar. Allt í lagi að reyna langskot en þau verða að hitta rammann.

En ef þeir sækja á fullu á okkur í byrjun? Hvað gerum við þá. Nr 1 er að ná boltanum af þeim og byrja spil innan okkar liðs. Smám saman að vinna sig upp völlinn. Einnig þarf að loka öllum svæðum á okkar vallarhelmingi og beita skyndisóknum. En best er að taka leikinn í okkar hendur og klára hann sem allra allra fyrst með 2-3 mörkum. Við getum það.

Víkingur Ó og Höttur hafa ekki mæst oft í fótboltaleikjum. Fimm sinnum að mig minnir (tölvan mín er í viðgerð með öllum upplýsingunum) og fyrst mættust liðin í úrslitakeppni 3.deildar árið 1991 þar sem Höttur vann okkur 1-2 á Ólafsvíkurvelli í miklum sandstormi. Árið 2003 mættust liðin næst í úrslitakeppni 3.deildar það ár og unnum við báða leikina 1-0. Síðan mættust liðin í 2.deildinni árið 2010 og vann Víkingur fyrri leikinn á heimavelli 3-1 og síðan var flogið austur og þar unnum við þá 1-2 eftir að hafa lent marki undir snemma leiks. Á laugardaginn munu liðin mætast í 6 sinn á ferlinum.

Eins og staðan er í dag fyrir 3.umferðina þá erum við í 4.sætinu í deildinni með fjögur stig. Það er ásættanlegt því að einn útisigur er kominn í höfn. Það yrði sterkt að taka þrjú stig til viðbótar á laugardaginn áður en við förum norður til leiks gegn Þór sem margir segja að séu með sterkt lið. Þór er það lið sem okkur hefur gengið hvað best gegn í 1.deildinni síðan við hófum leik þar árið 2005.

Einn leikmaður Hattar, Stefán Eyjólfsson er í leikbanni gegn okkur og augljóslega ætti það að veikja miðjuspilið hjá þeim þar sem Stefán er líklega þeirra leikreyndasti leikmaður og firnasterkur að sagt er.

Um næstu helgi er Hvítasunnuhelgi og er það alveg tilvalið að skella sér vestur á æskuslóðirnar og kíkja á leik í leiðinni ásamt því að njóta þess að vera þar um helgina.

Eftir leikinn gegn Hetti bíður okkar næsti heimaleikur gegn Pepsídeildarliði ÍBV í bikarnum. Þá mætir Ólsarinn Maggi Gylfa á æskuslóðir sínar með liðið sitt og fær góðar móttökur, kaffi og kökur á ég von á.

Tippkeppnin 3.umferđ + stađan.

22. maí 2012 klukkan 11:43
3.umferð 1.deildar hefst á föstudagskvöldið með þremur leikjum og síðan lýkur henni á laugardag með öðrum þremur leikjum og þar á meðal leikur okkar gegn Hetti.

Næsta umferð er svona og mín spá fylgir:

KA-Víkingur R.         2
ÍR - Fjölnir              1
Þróttur - Leiknir       2
Haukar - Þór           X
Víkingur Ó - Höttur   1
BÍ/Bol. - Tindastóll   1


Staðan eftir 2.umferðir:

Tómas Freyr Kristjánsson 6
Guðbjörn Ásgeirsson 6
Jóhannes Kristjánsson 5
Hinrik Konráðsson 5
Hákon Þ. Hermannsson 5
Þorsteinn Gunnarsson 5
Davíð Snorri Jónasson 5
Helgi Kristjánsson 5
Ólafur Guðbjörnsson 4
Guðjón Jóhannesson 4
Garðar Jónsson4 4
Kristján Már Ólafs 3
Hreinn Jónasson 3
Gunnsteinn Sigurðsson 3
Ævar Rafn Þrastarson 3
Olga Kristjánsdóttir 3
Eggert Herbertsson 3
Þór Steinar Ólafs 2
Viðar Ingi Pétursson 1
Þráinn Egilsson 1
Guðmundur Magnússon 1
Gunnar Örn Arnarson 1


Ţjótum upp töfluna.

19. maí 2012 klukkan 20:32
1.deild
Sauðárkróksvöllur
Laugardaginn 19.maí kl. 16.00

Tindastóll - Víkingur Ó.   0-1   (0-1)

0-1 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (28.mín)


Í dag var leikur. Leikur sem ég var skíthræddur við úrslitin úr. En strákarnir í liðinu létu mig líða vel eftir leikinn, því þeir gerðu það sem við stuðningsmennirnir sem komumst ekki á völlinn hjá liðinu vildum. Þeir unnu sigur, já glæsilegan sigur. Sigur sem á eftir að hjálpa okkur mikið við að klifra upp töfluna. Takk fyrir strákar.

Það var erfitt að hafa ekki okkar eigin textalýsingu eða útvarp frá leiknum. Ég fylgdist með textalýsingunni á fótbolta.net. Og þar mátti heyra það að Tindastóll hafi náð undirtökunum í byrjun leiks og væri meira með boltann. En minn heimildarmaður á leiknum tjáði mér það eftir leikinn að Tindastóll hafi ekki átt nema eitt hálffæri í öllum leiknum, kannski tvö. Þetta segir mér það að vörnin hafi verið firnasterk. Einnig sagði hann mér það að við hefðum átt að setja fleiri mörk en þetta eina. Arnar Sveinn átti skot í stöngina og þeir Björn Pálsson, Guðmundur Steinn og Arnar Sveinn áttu allir góð færi sem ekki nýttust.

Það er gott að vinna Tindastól á útivelli. Nýliðar eru yfirleitt eins og beljurnar á vorin, mjög sprækir og erfitt að mæta þeim í fyrstu leikjunum. Það verður líka á næstu helgi þegar við mætum hinum nýliðunum Hetti á Ólafsvíkurvelli. Höttur er búinn að eiga frábæra byrjun og er ábyggilega með sterkara lið en margur heldur. 

En drengirnir í liðinu sáu til þess að ég er glaður í kvöld. Mjög glaður og ánægður. Og ekki bara ég, heldur fjöldinn allur af okkar stuðningsfólki.

Eftir leiki dagsins erum við í 4.sæti. Gætum dottið niður í það 5. þegar Fjölnir og BÍ/Bolungarvík mætast og ef úrslitin þar verða önnur en jafntefli.
Næsti leikur verður á laugardaginn 26.maí gegn Hetti frá Egilsstöðum á Ólafsvíkurvelli.

Fáum ÍBV í heimsókn í bikarnum.

18. maí 2012 klukkan 16:19
Í hádeginu í dag var dregið í 32.liða úrslit bikarsins. Við vorum í hattinum ásamt 31 liði til viðbótar. Þegar búið var að draga í 11 leiki af 16 dró Róbert Agnarsson formaður Mótanefndar KSÍ nafn okkar uppúr skálinni. Þetta þýddi það að Víkingur Ó var komið með heimaleik. Ég og Maggi Stefáns sátum saman og Maggi spurði mig hvort ég ætlaði ekki að fara upp og draga mótherja fyrir okkur. Nei, sagði ég og mundi greinilega eftir því þegar ég var sendur í bikardráttinn fyrir hönd Víkings Ó eitt árið og þurfti að tilkynna stjórnarmönnunum að það hafi ekki verið mikil lukka sem fylgdi mér, því að mótherjinn það ár var Þór frá Akureyri á útivelli. Það var ekki mikil hamingja hjá þeim þá, vegna þess að Víkingur Ó þurfti að fara tvær ferðir til Akureyrar og spila tvo leiki gegn Þór í deild og bikar með 3-4 daga millibili. Maggi stóð þess vegna upp og stakk hendinni djúpt ofaní skálina og kom upp með eina bláa kúlu. Á miðanum sem var inní henni stóð ÍBV og ég leit sem snöggvast á Magga Gylfa og mér fannst svipurinn skrítinn!

Víkingur Ó og ÍBV hafa aldrei mæst áður í bikarleik.

Þegar Maggi Stef. dró mótherja fyrir okkur voru níu kúlur eftir í skálinni. Hann dró ÍBV. Önnur lið sem hann hefði getað lent á voru: KR, ÍA, Selfoss öll úr Pepsídeildinni, 2.deildarklúbbarnir Afturelding undir stjórn Steina Þuru, Njarðvík, Dalvík/Reynir og Reynir S. Einn klúbbur úr 3.deild var eftir, Þróttur V.

Steini Þuru átti sér draumaandstæðing. Hann vildi fá Víking Ó á útivelli. Steini líkt og Maggi Gylfa er alinn upp af Víkingi Ó.


Brynjar Gauti Guðjónsson okkar fyrrum samherji mun mæta til leiks á sinn gamla heimavöll með liði ÍBV.

Svona drógst þetta í dag og kemur drátturinn í réttri röð. T.d. fyrst kom Stjarnan uppúr hattinum og síðan Grótta og svo koll af kolli.

  1. Stjarnan - Grótta
  2. Víkingur R. - Fjölnir
  3. Keflavík - Grindavík
  4. FH - Fylkir
  5. KA - Fjarðabyggð
  6. KF eða Þór - Valur
  7. KFS - KB
  8. Leiknir R. - Þróttur R.
  9. Augnablik - Höttur
10. Breiðablik - BÍ/Bolungarvík
11. Fram - Haukar
12. Víkingur Ó - ÍBV
13. ÍA - KA
14. Þróttur V. - Afturelding
15. Selfoss - Njarðvík
16. Dalvík/Reynir - Reynir S.

Þarna eru þrjár viðureignir á milli liða úr Pepsídeildinni. Tvær viðureignir á milli liða í 1.deildinni, ein á milli liða í 2.deildinni og ein á milli liða í 3.deildinni. A.m.k. þrjú lið úr 2. eða 3. deild munu komast í 16 liða úrslit. Það eru sigurvegarnir úr leikjum KFS og KB, Dalvík/Reynir-Reynir S og Þróttur V.- Afturelding. A.m.k. þrjú Pepsídeildarlið munu örugglega falla út, ÍA eða KR, FH eða Fylkir og Keflavík eða Grindavík. Breiðablik og BÍ/Bolungarvík mættust í fyrra á Ísafirði og þau mætast aftur. Lengri ferðalögin falla í hendur ÍBV, BÍ/Bolungarvíkur, Hattar, Vals, KB og Reynis S í þetta sinn. Þau lið sem geta tekið strætó í leikina sína eru Grótta, Fjölnir, Fylkir, Þróttur R. og Haukar.

Mótanefndin hefur sett leik Víkings Ó og ÍBV á miðvikudaginn 6.júní kl.19.15 á Ólafsvíkurvelli.Svo er um að gera að taka daginn frá, því hver veit nema þetta gæti orðið svipaður leikur og gegn Stjörnunni í hittifyrra.

Dregiđ í 32 liđa úrslit á morgun í bikarnum.

17. maí 2012 klukkan 22:47
Í hádeginu á morgun verður dregið í 32 liða úrslit í bikarkeppni KSí. Þá koma öll 12 Pepsídeildarliðin inní keppnina.

Þessi lið verða í hattinum:

Pepsídeild:  Fram, Valur, KR, Breiðablik, FH, Grindavík, ÍBV, Fylkir, Selfoss, ÍA, Stjarnan og Keflavík

1.deild: BÍ/Bolungarvík, Höttur, Víkingur R., Víkingur Ó, KA, Fjölnir, Leiknir R., Haukar, Þróttur R.

2.deild: Afturelding, Dalvík/Reynir, Fjarðabyggð, Njarðvík, Grótta og Reynir S.

3.deild: KFS, Augnablik, KB og Þróttur V.

Einum leik er ólokið. Það er leikur KF og Þórs A. Sigurvegarinn bætist í hóp liðanna fyrir ofan.

Nú er stóra spurningin sú, hverja viljið þið fá sem mótherja í næstu umferð?  Ég og Magnús Stefánsson munum mæta fyrir hönd Víkings Ó í hádeginu á morgun og finna rétta mótherjann fyrir okkur!

Það væri gaman að mæta Magga Gylfa og hans liði ÍBV. Einnig myndi ég vilja spila við Keflavík í keppninni vegna þess að við höfum aldrei mætt þeim áður. Ævintýri yrði það fyrir okkur að mæta KR, Val eða FH á útivelli. En ég óska eftir fá 2.eða 3.deildarlið í næstu umferð heima. Þá eru meiri líkur á að komast lengra í keppninni, þó allir andstæðingar séu verðugir mótherjar og ekkert öruggt í þessu. En kúlurnar í skálinni ráða þessu á morgun.

Nćsti leikur. Tindastóll - Víkingur Ó.

17. maí 2012 klukkan 22:24
1.deild.
Sauðárkróksvöllur
Laugardaginn 19.maí kl. 16.00

Tindastóll - Víkingur Ó.


Það er stutt á milli leikja hjá okkur og núna strax á laugardaginn er næsti leikur. Þá er mótherjinn nýliðar Tindastóls sem áttu fínan leik gegn Haukum í 1.umferðinni og síðan segja þeir sjálfir á sinni heimasíðu að þeir hafi átt slakan leik í bikarnum gegn Dalvík/Reyni, í leik sem þeir töpuðu dáldið óvænt 0-2. Sá leikur fór fram í Boganum á Akureyri á gervigrasi. Það má búast við "stólunum" dýrvitlausum gegn okkur eftir síðasta leik þeirra. Þrjú stig útúr þessum leik myndu hjálpa okkur mikið hvað varðar framhaldið. Allir leikmennirnir okkar eru heilir og enginn afsökun til fyrir döprum leik. Við mætum í þennan leik með eitt stig og það stig skulum við passa vel uppá og reyna að fjölga þeim í þrjú.

Víkingur Ólafsvík hefur einungis spilað fjóra leik gegn Tindastóli á ferlinum. Fyrstu tveir leikirnir voru árið 1977 í 3.deildinni og fyrri leikurinn endaði 0-0 á Sauðárkróksvelli. Seinni leikurinn fór fram á Ólafsvíkurvelli og unnum við þann leik 5-2. Mörk Víkings gerðu þeir: Atli Alexandersson, Magnús Stefánsson, Þorgrímur Þráinsson, Jóhannes Kristjánsson og undirritaður Helgi Kristjánsson. Magnús, Jóhannes og Helgi voru þarna að skora sitt fyrsta mark fyrir Víking Ó. Þorgrímur gerði þarna sitt annað mark. Tindastóll vann síðan riðilinn og fór í úrslitakeppnina en náði ekki að komast upp.
Seinni tveir leikirnir fóru fram árið 2004 í 2.deildinni. Fyrri leikurinn fór fram á Sauðárkróki og endaði með 1-1 jafntefli. Mark Víkings Ó gerði Predrag Milosavljevic. Seinni leikurinn fór fram á Grundarfjarðarvelli og fór sá leikur 2-0 fyrir okkur. Mörk Víkings Ó gerðu þeir Aleksandar Linta úr víti og Hermann Þór Geirsson.

Þetta eru einu leikir þessara félaga á ferlingum og hefur Víkingur Ó vinninginn með tvo sigra, tvö jafntefli og ekkert tap. Markatalan er 8-3 Víking Ó í vil.

Mikill snjór hefur verið fyrir norðan miðað við árstíma og hefur Sauðárkróksvöllur verið þakinn snjó. Ef snjóinn tekur ekki upp er alveg viðbúið að Mótanefnd KSÍ ákveði að fresta leiknum en sú ákvörðun liggur ekki enn fyrir en við skulum vona að til þess þurfi ekki að taka.

Tippkeppnin 2.umferđ

17. maí 2012 klukkan 17:48

Þá er komið að 2.umferðinni. Skv. mótaniðurröðuninni eru 5 leikir á dagskrá á laugardaginn kemur og einn á sunnudaginn.

Þessir leikir eru á dagskrá og mín spá fylgir með.

Víkingur R. - ÍR             X
Höttur - Haukar             1
Þór - Þróttur R.              X
Leiknir R - KA                X
Tindastóll - Víkingur Ó.   2
Fjölnir - BÍ/Bol.              X

Setjið spárnar ykkar í athugasemdirnar hér fyrir neðan.

Ţćgilegur bikarsigur.

17. maí 2012 klukkan 12:09
Bikarkeppni KSÍ
32.liða úrslit
Þorlákshafnarvöllur

Ægir - Víkingur Ó  1-4  (0-3)

0-1 Edin Beslija (28.mín, víti)
0-2 Eldar Masic  (35.mín)
0-3 Guðmundur Steinn Hafsteinsson (45.mín)
0-4 Guðmundur Magnússon (61.mín)
1-4 Arilíus Marteinsson (66.mín)

Byrjunarlið Víkings Ó., Einar Hjörleifssno, Alfreð Már Hjaltalín, Tomasz Luba, Clark Keltie, Emir Dokara, Edin Beslija, Eldar Masic, Björn Pálsson, Arnar Sveinn Geirsson, Guðmundur Steinn Hafsteinsson og Fannar Hilmarsson. Varamenn í dag voru: Guðmundur Magnússon, Torfi Karl Ólafsson, Helgi Óttarr Hafsteinsson, Steinar Már Ragnarsson, Kristinn M. Pétursson og Ólafur Hlynur Illugason. Gleymdi ég nokkrum?


Víkingur Ó mætti til Þorlákshafnar í gær til leiks við lið heimamanna Ægi. Leikurinn var í 2.umferð bikarkeppni KSÍ. Veður var skaplegt, smá vindur en ekkert alvarlegur og dálítið kalt í veðri fyrir áhorfendur sem bara klæddu sig betur. Aðstæður í Þorlákshöfn bara ágætar og stúkubygging orðinn draumur hjá þeim eða jafnvel fyrirhugaður. En vonandi gengur þeim bara vel að byggja upp sitt svæði. En snúum okkur að leiknum.

Eins og búist var við var lið Víkings Ó sterkari aðilinn í leiknum. Samt spilaði liðið ekki á fullum hraða í leiknum og forðaðist tæklingar og að fá óþarfa spjöld og meiðsli og þess háttar. Víkingur Ó var meira með boltann en Ægismenn reyndu hvað þeir gátu að sækja á okkur en vörnin okkar átti ekki í miklum vandræðum með að bægja allri hættu frá. En hinu megin á vellinum var sterkur varnarmúr með stórum og stæðilegum skallamönnum og gekk okkur ekki nógu vel að komast í gegnum þá. En við vissum að þetta væri þolinmæðisvinna og það gekk eftir. Nokkur færi komu sem nýttust ekki og það var ekki fyrr en á 28.mín að Arnar Sveinn Geirsson tók einn varnarmann þeirra á við endalínuna og þegar Arnar Sveinn brunaði framhjá honum felldi varnarmaðurinn hann sem féll kylliflatur og vítaspyrna dæmd. Edin Beslija fór á punktinn og skoraði af öryggi. Staðan 1-0 fyrir okkur. Ekki löngu seinna var Víkingur Ó í sókn og Eldar Masic fær boltann rétt innan vítateigs þeirra og lætur vaða á markið, boltinn fer í einn varnarmanninn og breytir lítilega um stefnu þannig að ágætur markvörður þeirra fór úr jafnvægi og boltinn fór í netið. 2-0 og staðan orðin þægileg og ekkert sem benti til þess að við myndum tapa þessum leik. Alveg undir lok leiksins fær Guðmundur Steinn Hafsteinsson boltann við vítateigslínuna vinstra megin og sendir boltann innanfótar fast uppí hægra hornið. Glæsilegt mark og staðan orðin 3-0.

Hálfleikur.

Ejub stillti upp óbreyttu liði í byrjun seinni hálfleiks og fljótlega tók hann Fannar Hilmarsson og Arnar Svein Geirsson af velli fyrir þá Guðmund Magnússon og Steinar Má Ragnarsson. Seinna í leiknum tók hann Edin Beslija útaf og setti Torfa Karl Ólafsson inná. Það var síðan Guðmundur Magnússon sem skoraði fjórða mark okkar á 61.mín eftir að hafa leikið boltanum frá vinstri kanti inneftir vítateigslínunni og skotið það á markið niðri vinstra megin. Markvörðurinn var í boltanum en missti hann innundir sig. 4-0. Fimm mínútum seinna náðu Ægismenn að svara fyrir sig þegar aukaspyrna utan af hægri kanti barst fyrir markið og Arilíus Marteinsson fyrrum leikmaður Selfoss stökk manna hæst og skallaði boltann í netið. 1-4.

Fimmta markið lá síðan í loftinu en kom aldrei.

Nýr leikmaður spilaði með Víking Ó í þessum leik og mér fannst hann góður. Hann heitir Clark Keltie og spilaði hann í fyrra með Þór Akureyri. Ejub notaði hann í miðverðinum og þarna er kominn miðvörðurinn sem okkur vantaði. Hann var sterkur og mikið í boltanum. Gárungarnir sögðu það á áhorfendapöllunum að Tomasz Luba væri í sumarfríi þessum leik því Clark vann mikið af þeirri vinnu sem Tomasz hefur unnið í leikjunum. Hinn miðvörðurinn sem spilaði síðasta leik okkar gegn Fjölni, Janis Vaitkus er farinn frá okkur. Ákveðið var að semja ekki við hann.

Það er alltaf erfitt að velja þrjá bestu leikmennina og þetta geri ég meira til gamans og kannski til að hvetja leikmennina til dáða. Niðurstaðan hjá mér og mínum aðstoðarmanni í valinu, Jóhannes bróður, er sú að þrír bestu leikmenn okkar í þessum leik eru þeir, Clark Keltie, Alfreð Már Hjaltalín og Eldar Masic. Margir aðrir komu til greina eins og t.d. Edin og Björn Pálsson. En þetta er niðurstaðan í þessum leik.

Ægisliðið er gott 3.deildarlið. Að mínu mati ættu þeir að gera góða hluti í sumar. Vörnin er sterk og einnig eru þeir með sókndjarft lið. Miðjan er að mínu mati kannski þeirra veikleiki en það erfitt að meta liðið þeirra í leik gegn liði sem er tveimur deildum ofar og með bestu miðjuna í 1.deildinni. En bara gangi þeim bara vel í sumar.

Næsti ráðgerði leikur Víkings Ó er gegn Tindastóli á útivelli. Ég heyrði það í gærkvöldi að Mótanefndin er í viðbragðsstöðu að fresta leiknum ef snjórinn fyrir norðan verður ekki horfinn á leikdag. En við verðum bara að fylgjast með og vona það besta.

Dregið verður í 32 liða úrslit bikarkeppninnar á morgun föstudaginn 18.maí og þá koma Pepsídeildarliðin inní keppnina.

Betri byrjun en í fyrra hjá okkur.

12. maí 2012 klukkan 22:25

1.deild
Ólafsvíkurvöllur
Laugardaginn 12.maí 2012

Víkingur Ó - Fjölnir   1-1  (1-0)

1-0 Edin Beslija (40.mín, víti)
1-1 Ómar Hákonarson (54.mín)

Byrjunarlið Víkings Ó: Einar Hjörleifsson, Alfreð Már Hjaltalín, Tomasz Luba, Janis Vaitkus, Emir Dokara, Eldar Masic, Edin Beslija, Björn Pálsson, Fannar Hilmarsson, Guðmundur Magnússon og Guðmundur Steinn Hafsteinsson (fyrirliði). Varamann sem komu inná voru: Arnar Sveinn Geirsson, Steinar Már Ragnarsson og Torfi Karl Ólafsson. Aðrir varamenn ónotaðir í dag: Jón Haukur Hilmarsson, Ólafur Hlynur Illugason, Anton Jónas Illugason, Dominik Bajda og Kristinn M. Pétursson. Einn var í leikbanni: Helgi Óttar Hafsteinsson.

Í dag hófst keppni í 1.deild karla í knattspyrnu. Heil umferð var spiluð og okkar viðfangsefni var leikur gegn Fjölni á heimavelli. Í fyrra hófum við einnig mótið með heimaleik gegn Haukum sem við töpuðum 1-2. Og má segja það að mótið byrji betur hjá okkur en þá, þar sem að nú erum við búnir að innbyrða fyrsta stigið okkar í sumar. Í fyrra byrjuðum við hræðilega, tap, tap, jafntefli og jafntefli eða 2 stig eftir fjórar umferðir og neðsta sætið var okkar. En eins og við öll vitum tókum við okkur á og unnum okkur uppí 4.sætið og þar enduðum við keppnina og þar er besti árangur Víkings Ó á ferlinum.

Leikurinn í dag var spilaður við góðar aðstöður þó að hafi byrjað að blása í seinni hluta leiksins. Völlurinn er allur að koma til og var þungur fyrir leikmennina í dag. Sólin þarf að fara að láta sjá sig svo um munar til að völlurinn harðni aðeins og það verði betra að spila á honum.

Víkingur Ó hóf leikinn betur og lágu Fjölnismenn með átta menn í vörn í fyrri hálfleik og lítið reyndi á Einar í markinu. Færin komu reglulega hjá Víking Ó og átti liðið að klára leikinn í fyrri hálfleiknum. Af nokkrum góðum færum má nefna það þegar Guðmundur Steinn Hafsteinsson komst einn í gegn og markvörðurinn varði skot hans og þegar Guðmundur Magnússon komst einn gegn úthlaupandi markverðinum og ákvað að lyfta boltanum yfir hann og því miður fyrir okkur fór boltinn einnig yfir galopið markið og í útspark.  En það þarf að nýta færin og það gekk ekki nógu vel. Það var síðan undir lok fyrri hálfleiks þegar Víkingur Ó átti hornspyrnu að einn varnarmaður Fjölnis rífur í Guðmund Stein og togar hann niður innan teigs og dómarinn dæmir réttilega vítaspyrnu sem Edin Beslija tók af þvílíku öryggi að bestu vítaskyttur í heiminum hefðu verið stoltar af. Staðan orðin 1-0 og stutt í hálfleik.

Í seinni hálfleik breytti Fjölnir um taktík og færði liðið sitt framar á völlinn, eðlilega. Eftir 9 mínútna leik í seinni hálfleik spyrnir Björn Pálsson boltanum í einn Fjölnismanninn sem sótti að honum og svo slysalega vildi til að boltinn hrökk inn fyrir vörnina hjá Víking Ó og á Ómar Hákonarson sem var órangstæður sökum staðsetningar Emirs Dokara og staddur við vítapunktinn lét hann vaða á markið og Einar hálfvarði boltann sem spýttist uppí vinstra hornið og inn. Hálf slysalegt mark.

Eftir markið má segja að leikmenn Fjölnis hafi fengið vítamínssprautu í rassinn því þeir skyndilega fóru að sækja meira og næstu mínúturnar voru Víkingunum nokkuð erfiðar. En allt gengur yfir fyrir rest og það gerðist líka með sóknarleik Fjölnis og Víkingur Ó kom sér aftur inní leikinn og átti nokkrar góðar sóknarlotur án þess að ná að skapa sér nein dauðafæri. Edin Beslija tók á þeim tímapunkti frábæra aukaspyrnu sem markvörður Fjölnis að nafni Steinar var útvið stöng niðri á heimsmælikvaða. En leikmenn Fjölnis bættu í á lokamínútunum og áttu skot í stöng ásamt því að eiga skot að marki sem Alfreð Már Hjaltalín Bjargaði á línu. Auk þess varði Einar Hjörleifsson í tvígang skot sem tekin voru í dauðafærum innan teigs einn á móti markverði.

Mér fannst þessi leikur vera fínn og alls ekkert leiðinlegur. Þetta yfirspenna fyrir okkur stuðningsmennina. Sigurmarkið gat komið hvorum megin sem var, en það kom aldrei. Niðurstaðan varð því jafntefli 1-1 og mega bæði lið vel við una.

Fyrsti leikur í Íslandsmóti er alltaf erfiður sökum spennu og þess háttar. Lið Víkings Ó getur spilað miklu betur en liðið gerði í dag en samt var þessi leikur ekki slakur hjá þeim. Það má ekki gleyma því að Fjölnir stillti upp sterku liði í dag og Ágúst Gylfason þjálfari þeirra er á réttri leið með liðið. Nokkrir leikmenn Víkings Ó eiga alveg helling inni og er það bara jákvætt. Mér datt eitt í hug, ætti sóknarlínan okkar ekki að gera meira af því að skipta um stöður og rugla varnarmenn mótherjanna í ríminu. T.d. að eftir 20 mín leik er kannski Guðmundur Magnússon kominn í senterstöðuna og Fannar eða Arnar komnir á vinstri kantinn og Guðmundur Steinn á hægri kantinn og síðan eftir korter breyta þeir aftur og fimm mínútum síðar aftur og svo koll af kolli. Þetta var eitt af því erfiðasta sem ég stóð andspænis sem bakvörður hjá Víking Ó á sínum tíma þegar mótherjinn var allaf að breyta um stöður. Þá komu oft upp spurningar, á ég að fylgja honum eftir eða vera kyrr? Hvaða leikmann á ég að passa núna þegar þessi er farinn?

Það var gaman að sjá marga góða á vellinum. Sérstaklega að sjá þá Brynjar Kristmundsson og Þorstein Má Ragnarsson sem gerðu sér ferð vestur á leikinn. Einnig var Alfreð E. Jóhannsson fyrrum leikmaður okkar og núverandi þjálfari Ægis frá Þorlákshöfn á vellinum. Sennilega að spæja, því næsti leikur okkar er gegn Ægi í bikarnum.

Ég þurfti að hugsa mig mikið um þegar val á þremur bestu leikmönnum Víkings Ó var ákveðið. Ég var ekki í vafa með þann besta því hann bjargaði stigi fyrir okkur undir lokin og þetta er að sjálfsögðu hann Einar Hjörleifsson markvörður okkar. Einnig vel ég Edin Beslija sem að mínu mati átti flottan leik. Sá þriðji kom af varamannabekknum í seinni hálfleik og hressi liðið við með kröftugum leik og mikilli baráttu sem smitaði út frá sér, það er Steinar Már Ragnarsson.

Dómari var Þórður Már Gylfason frá Akranesi og ég hef ekki oft verið ánægður með hans störf,  en í dag fannst mér hann dæma vel með smáundantekningum. Aðstoðardómararnir voru líka góðir þó einu sinni hefði annar þeirra mátt veifa á brot sem Arnar Sveinn átti að fá við vítateigslínuna hjá Fjölni. En niðurstaðan er sú að tríóið fær 4 í einkunn af 5 mögulegum enda engir skandalar í gangi hjá þeim í leiknum. 

Þess skal getið að Víkingur Ó útvarpaði frá þessum leik á netinu og það var Hákon Þ Hermannsson sem lýsti leiknum. Í fyrsta skipti sem hann lýsir fótboltaleik.

Næsti leikur Víkings Ó er bikarleikur í 2.umferð keppninnar. Sá leikur fer fram á Þorlákshafnarvelli miðvikudaginn 16.maí kl. 20.00 gegn liði heimamanna Ægi. 

Næsti deildarleikur er á Sauðárkróki gegn Tindastóli. Nánar um það síðar.  

Tippkeppnin er hér neđar á síđunni.

12. maí 2012 klukkan 08:43
Tippkeppnin er hér neðar á síðunni. Fyrstu leikir eru í dag kl. 14.00. Þeir sem ætla að vera með í sumar frá byrjun þurfa að tippa á úrslitin fyrir kl. 14.00 í dag.

1.sćti - Víkingur R. (882 stig)

11. maí 2012 klukkan 23:05

Hvaðan  koma þeir: Reykjavík
Stofnað: 1908
Þjálfari: Ólafur Þórðarson
Heimavöllur: Víkingsvöllur

Ferill í Íslandsmóti: A deild 1918-1936, 1938-1942 og 1944-1956, B deild 1957-1962 og 1964-1969, A deild 1970, B deild 1971, A deild 1972, B deild 1973, A deild 1974-1985, B deild 1986-1987, A deild 1988-1993, B deild 1994-1998, A deild 1999, B deild 2000-2003, A deild 2004, B deild 2005, A deild 2006-2007, B deild 2008-2010, A deild 2011, B deild 2012- 

Titlar:
Íslandsmeistari: (5), 1920, 1924, 1981, 1982 og 1991
Bikarmeistari: 1971
B deildarmeistari: 1969, 1971, 1973, 1987 og 2010
Meistarakeppni KSÍ: 1982, 1983



Mynd úr gömlum leik Víkings R og Víkings Ó á Víkingsvellinum. Leikmenn Víkings Ó á myndinni eru f.v. Elinbergur Sveinsson, Dalibor Nedic, Hermann Geir Þórsson og Brynjar Gauti Guðjónsson.

Nafnar okkar í Víking Reykjavík eru taldir vera með sterkasta liðið í deildinni skv. niðurstöðu spámanna síðunnar. Það er ekkert óeðlilegt að þeim sé spáð þessu sæti, því lið sem falla úr deild ofar fá yfirleitt góð spá árið eftir.

Nýr þjálfari er tekinn við Víkingunum og það hinn baráttuglaði Ólafur Þórðarson. Hann á eftir að berja liðið áfram og verður örugglega með liðið í toppbaráttunni. Það væri draumur minn að bæði Víkingsliðin myndu fara upp í haust. Víkingur Ó er liðið sem ól mig upp og ég bý 100 metra frá Víkingsvellinum í Reykjavík og það væri ekki leiðinlegt fyrir mig að fá Pepsídeildarleiki nánast í garðinn minn.

Ég hef ekki skrifað mikið um liðin í kringum þessar spár en þegar við mætum þeim mun ég reyna að skrifa meira um þau í upphitunargreinunum.

Farnir:
Björgólfur Takefusa í Fylki  (lán)
Colin Marchall til Japans
Gunnar Einarsson í Leikni R.
Magnús Páll Gunnarsson í Hauka
Pétur Georg Markan í BÍ/Bolungarvík
Walter Hjaltested til Svíþjóðar

Komnir:
Alexsander Lúðvíksson úr Hamri
Evan Schwartz úr Breiðablik
Hjörtur J. Hjartarson úr ÍA
Jón Guðbrandsson úr Selfossi
Kjartan Dige Baldurson úr Gróttu (úr láni)
Reynir Leósson úr Val

Víking R var 46 sinnum spáð 1.sætinu og 14 sinnum 2.sætinu. Þeim var aldrei spáð 11. eða 12.sætinu.

Heimild: Íslensk knattspyrna.

2.sćti - Ţór (758 stig)

11. maí 2012 klukkan 22:37
Hvaða koma þeir: Akureyri
Stofnað: 1915
Þjálfari: Páll V. Gíslason
Heimavöllur: Þórsvöllur

Ferill í Íslandsmóti: (Aðild að ÍBA 1955-1974), C deild 1975, B deild 1976, A deild 1977, B deild 1978-1980, A deild 1981, B deild 1982, A deild 1983-1990, B deild 1991, A deild 1992-1994, B deild 1995-1998, C deild 1999-2000, B deild 2001, A deild 2002, B-deild 2003-2010, A deild 2011, B deild 2012-

Titlar:
B deildarmeistari: 2001
C deildarmeistar: 1975 og 2000


Úr leik Selfoss og Víkings Ó síðasta sumar á Selfossvelli. Leiknum lauk með sigri Selfoss 3-1.

Þór Akureyri er spáð 2.sætinu. Þeir féllu úr Pepsídeildinni síðasta haust eftir mikla dramatík og í raun var lítið sem benti til þess fyrir lokaumferðina að það skyldu verða þeir sem myndu falla. En svona er fótboltinn, semsagt óútreiknanlegur.

Það er sagt að þeim sem þekkja að lið Þórs sé sterkt um þessar mundir og spáin því alveg í samræmi við það. En ég ætla ekki að hafa fleiri orð um Þór í bili.

Farnir:
Atli Sigurjónsson í KR (barnabarnabarn Guðbrands Guðbrandssonar hreppstjóra)
Björn Hákon Sveinsson til Noregs
Clark Keltie til Írlands
David Disztl til KA
Gísli Páll Helgason í Breiðablik
Gunnar Már Guðmundsson í FH (úr láni)

Komnir:
Andri Hjörvar Albertsson úr Fjarðabyggð
Kristinn Þór Björnsson úr Dalvík/Reyni
Orri Freyr Hjaltalín úr Grindavík
Víkingur Pálmason úr KF

Þór var 18 sinnum spáð 1.sætinu og 11 sinnum því öðru. Þeim var aldrei spáð 11. eða 12. sætinu.

Heimild: Íslensk knattspyrna.

3.sćti - Víkingur Ó. (755 stig)

11. maí 2012 klukkan 20:03
Hvaðan koma þeir: Snæfellsbæ
Stofnað: 1928
Þjálfari: Ejub Purisevic
Heimavöllur: Ólafsvíkurvöllur (Hellissandsvöllur til vara)

Ferill í Íslandsmóti: (Aðild að HSH 1967-1969) C-deild 1970 og 1972-1974. B-deild 1975. C-deild 1976-1985. D-deild 1986-1999 og 2003. (Aðild að HSH 2000-2002). C-deild 2004. B-deild 2005-2009. C-deild 2010. B-deild 2011-?.

Titlar:
C-deildarmeistari: 1974, 2010
D-deildarmeistari: 2003

Deildarbikarmeistari B: 2010



Þessi mynd skýrir sig sjálf.

Það kom í hlut okkar ástkæra félags Víkings Ó að vera spáð 3.sætinu. Náist það þá verður það besti árangur félagsins frá upphafi í deildarkeppni. Það er ekkert skrítið þó menn hafi trú á liðinu, því Víkingur Ó er búið að spila vel í vor og náð mörgum flottum úrslitum. En leikir á undirbúningstímabilinu gilda ekkert í Íslandsmótinu, þar byrja öll liðin á núlli.

Víkingur Ó hefur misst nokkra sterka leikmenn frá því í fyrra. Leikmenn eins og Þorstein Má Ragnarsson sem fór til KR, Brynjar Kristmundsson sem fór til Vals, Artjoms Goncars sem fór erlendis og síðan var tveimur leikmönnum skilað úr láni eða þeim Matarr Nesta Jobe sem fór aftur til Vals og Hilmar Þór Hilmarsson (Hilla Dæju) sem fór aftur til Stjörnunnar.

Á móti höfum við fengið fjóra nýja leikmenn og alla þungavigtarmenn. Arnar Sveinn Geirsson kom frá Val, Björn Pálsson kom aftur til okkar á láni frá Stjörnunni, Torfi Karl Ólafsson kom í láni frá KR og í dag kom nýr leikmaður til okkar Janis Vaitkus frá Lettlandi en hann spilaði í 3. eða 4.deildinni í Ítalíu í vetur. Hann kemur úr 26 stiga hita í hitastigið sem er á Íslandi í dag.

Ég vona að ég sé ekki gleyma neinum.  

Farnir:
Þorsteinn Már Ragnarsson í KR
Brynjar Kristmundsson í Val
Matarr Nesta Jobe í Val (úr láni)
Hilmar Þór Hilmarsson í Stjörnuna (úr láni)
Artjoms Goncars til útlanda

Komnir:
Björn Pálsson úr Stjörnunni (lán)
Arnar Sveinn Geirsson úr Val
Torfi Karl Ólafsson úr KR (lán)
Janis Vaitkus frá Lettlandi

Þrír fyrstu leikir Víkings Ó. 

Víkingur Ó - Fjölnir
Tindastóll - Víkingur Ó.
Víkingur Ó. - Höttur

Víking Ó var 3svar sinnum spáð 1.sætinu og 21 sinni því öðru. Liðinu var aldrei spáð 11. eða 12.sætinu.  

Heimild: Íslensk knattspyrna.  

4.sćti - Haukar (717 stig)

10. maí 2012 klukkan 23:00
Hvaðan eru þeir: Hafnarfjörður
Stofnað: 1931
Þjálfari: Ólafur Jóhannesson
Heimavöllur: Ásvellir (gervigras)

Ferill í Íslandsmóti: (Aðild að liði ÍBH 1956-1965) B-deild 1964-1978. A-deild 1979. B-deild 1980-1981. C-deild 1982. D-deild 1983-1986. C-deild 1987. D-deild 1988-1989. C-deild 1990. B-deild 1991. C-deild 1992-1995. D-deild 1996-2000. C-deild 2001. B-deild 2002-2006. C-deild 2007. B-deild 2008-2009. A-deild 2010. B-deild 2011-?.

Titlar:
C-deildarmeistari: 2001, 2007
D-deildarmeistari: 2000



Mynd úr leik Hauka og Víkings Ó árið 2009. Víkingarnir á myndinni eru þeir Danijel Blasko og Fannar Hilmarsson. Haukamaðurinn er Ásgeir Þór Ingólfsson núverandi leikmaður Vals.

Haukum er spáð 4.sæti. Í fyrra lentu þeir í 3ja sæti og spámenn síðunnar telja að þeir verði á svipuðu róli og í fyrra. Lið Haukanna er sennilega reynslumesta liðið í deildinni. Þarna eru margir gamlir refir eins og t.d. Sigurbjörn Hreiðarsson, Guðmundur Mete, Guðmundur Sævarsson, Daði Lárusson, Valur Fannar Gíslason og Viktor Unnar Illugason svo einhverjir séu nefndir. Ég hefði getað talið upp fleiri. En Haukarnir eru eina liðið í deildinni sem spilar á gervigrasi og umgjörð á svoleiðis leikjum er alltaf svolítið óspennandi. Það getur gert það að verkum að þeir eiga erfitt með að búa til heimaleikjastemmingu að mínu mati. En liðið er sterkt og verða áreiðanlega í toppbaráttunni.

Ég óska Sigurbirni Hreiðarssyni mínum gamla góða samherja hjá Val góðs gengis í sumar í aðstoðarþjálfarastöðunni og sem leikmanns.

Farnir:
Anton Bjarnason í ÍBV
Aron Már Smárason í Hamar
Ásgeir Þór Ingólfsson í Val
Grétar Atli Grétarsson í Stjörnuna (úr láni)
Hilmar Rafn Emilsson í Val
Ísak Örn Einarsson í Njarðvík (lán)
Pétur Ásbjörn Sæmundsson í Álftanes
Úlfar Hrafn Pálsson í Val
Þórir Guðnason í ÍR

Komnir:
Enok Eiðsson úr ÍH (úr láni)
Guðmundur Sævarsson úr FH
Hróar Sigurðsson úr KR (lán)
Magnús Páll Gunnarsson úr Víkingi R.
Sigurbjörn Örn Hreiðarsson úr Val
Sverrir Garðarsson úr ÍBV
Valur Fannar Gíslason úr Fylki
Viktor Smári Segatta úr FH (lán)
Viktor Unnar Illugason úr Breiðablik (lán)

Þrír fyrstu leikir Hauka.

Haukar - Tindastóll
Höttur - Haukar
Haukar - Þór

Haukum var spáð 8 sinnum 1.sætinu og 17 sinnum 2.sætinu. Þeim var aldrei spáð 11.sætinu eða því 12.

Heimild: Íslensk knattspyrna.


5.sćti - Leiknir R. (599 stig)

09. maí 2012 klukkan 19:57

Hvaðan koma þeir: Reykjavík
Stofnað: 1973
Þjálfari: Willum Þór Þórsson
Heimavöllur: Leiknisvöllur

Ferill í Íslandsmóti: C-deild 1974-1981. D-deild 1984-1986. C-deild 1987-1989. D-deild 1990-1994. C-deild 1995. B-deild 1996. C-deild 1997-2002. D-deild 2003. C-deild 2004-2005. B-deild 2006-?.

Titlar:
C-deildarmeistari: 2005

Deildarbikarmeistari B: 2005


Leikmenn Víkings Ó fagna marki gegn Leikni á Ólafsvíkurvelli. Leiknismenn þurftu að spila leikinn í varabúningum Víkings.

Við spáum því að Leiknir R. hafni í 5.sætinu. Leiknir sem slapp naumlega við fall í fyrra þegar þeir gerðu sér lítið fyrir og kaffærðu ÍA í lokaleik sínum í fyrra á sama tíma og Gróttu var fyrirmunað að skora gegn HK. En nú ætla þeir ekki að endurtaka þennan leik að vera í bastli í allt sumar. Þeir hafa ráðið Willum Þór Þórsson til að stjórna liðinu í sumar og þar vantar ekki reynsluna. Ég sjálfur hef nú ekki séð Leikni spila ennþá en úrslit leikja þeirra benda til þess að þeir eru á uppleið.

Farnir:
Eggert Rafn Einarsson í KV
Gestur Ingi Harðarson í Berserki
Pape Mamadou Faye í Grindavík
Þórir Guðjónsson í Val (úr láni)

Komnir:
Andri Steinn Birgisson úr Keflavík
Damir Muminovic úr HK
Gunnar Einarsson úr Víkingur R.
Pétur Már Harðarson úr Gróttu
Stefán Jóhann Eggertsson úr Val


Þrír fyrstu leikir Leiknis:

Þór - Leiknir R
Leiknir R - KA
Þróttur - Leiknir R.

Þrisvar sinnum var Leikni spáð 1.sætinu og ellefu sinnum 2.sætinu. Þeim var aldrei spáð 11.sætinu né 12.sætinu.

Heimild: Íslensk knattspyrna.

Tippkeppnin 2012.

09. maí 2012 klukkan 19:31
Ég ætla að setja tippkeppni af stað eins síðustu ár og verður hún með sama sniði og í fyrra. Tippað er 1,x eða 2 á leikina og fæst eitt stig fyrir hvern réttan leik. Einnig mun ég setja af og til inn aukaleiki eins og í fyrra.

Verðlaunin er þau sömu og í fyrra. Hákon Þorri sem lenti í verðlaunasæti virðist ekki hafa áhuga á verðlaununum sínum en hann má hafa samband við mig vegna þeirra.

Sigurvegarar eru þessir:

2008 Vigfús Örn Gíslason
2009 Kristján Már Ólafs
2010 Hreinn Jónasson
2011 Guðbjörn Ásgeirsson

Eins og í fyrra koma hér fimm aukaspurningar sem gefa 3 stig hver í haust ef þær eru réttar.

1. Hvaða lið vinnur 1.deildina?

2. Hvaða lið verður bikarmeistari?

3. Hvaða lið verður Íslandsmeistari?

4. Hvaða lið vinnur 2.deildina?

5. Hvaða lið vinnur 3.deildina?

1.umferðin verður spiluð næsta laugardag.
Mín spá er svona:

Víkingur Ó - Fjölnir    1
Þór - Leiknir R.          1
ÍR - KA                    X
Þróttur - Höttur         1
BÍ/Bol. - Víkingur R.   X
Haukar - Tindastóll    1

Mín svör við spurningunum:

1. Víkingur Ó.
2. Valur
3. ÍA
4. Grótta
5. Leiknir F.


6.sćti - Fjölnir (554 stig)

08. maí 2012 klukkan 23:13
Hvaðan koma þeir: Reykjavík
Stofnað: 1988
Þjálfari: Ágúst Gylfason
Heimavöllur: Fjölnisvöllur

Ferill í Íslandsmóti: D-deild 1989-1993. C-deild 1994-1998. D-deild 1999-2002. C-deild 2003. B-deild 2004-2007. A-deild 2008-2009. B-deild 2010-?.


Frá Fjölnis og Víkings Ó síðasta vor á Fjölnisvellinum í skítakulda. Leikurinn endaði með 2-0 sigri Fjölnis.  

Fyrsta liðið sem við spáum að verði í efri hlutanum er Fjölnir. Gengi þeirra í Lengjubikarnum var ekki nógu gott en líta verður á það að allir leikir þeirra í þeirri keppni voru hnífjafnir. Þeir voru að tapa sínum leikjum með einu marki fyrir utan leikinn við Val sem tapaðist með tveimur mörkum. Þeir skoruðu 10 mörk gegn 14. Gengi þeirra gegn 1.deildarliðunum var þannig að þeir unnu Þór 1-0, gerðu jafntefli við Leikni 1-1 og töpuðu fyrir Hetti 3-4. Ég hef á tilfinningunni að Fjölnir eigi meira inni en menn halda og komi af krafti í mótið.

Farnir:
Gunnar Valur Gunnarsson í KA
Kristinn Freyr Sigurðsson í Val

Komnir:
Árni Kristinn Gunnarson úr Breiðablik
Ásgeir Aron Ásgeirsson frá HK
Egill Gautur Steingrímsson frá Aftureldingu (úr láni)
Gunnar Sigurðsson frá FH

Þrír fyrstu leikir Fjölnis:
Víkingur Ó - Fjölnir
Fjölnir - BÍ/Bolungarvík
ÍR - Fjölnir

Spámenn síðunnar settu Fjölni aldrei í 1.sætið, en þeir settu þá tvisvar í 2.sætið. Einu sinni var þeim spáð 11.sætinu en aldrei því tólfta.

Heimild: Íslensk knattspyrna.

Viđ mćtum Ćgi frá Ţorlákshöfn.

08. maí 2012 klukkan 22:50

Í kvöld var spilað í 1.umferð Bikarkeppni KSÍ. Ein viðureign snerti okkur því við eigum að mæta sigurvegaranum úr þeirri umferð í 2.umferð. Leikurinn var viðureign Ísbjarnarins og Ægi. Leikar fóru þannig að lærisveinar okkar fyrrum samherja Alfreðs E. Jóhannssonar í Ægi unnu leikinn 4-2 og það þýðir það að Víkingur Ó mun mæta á Þorlákshafnarvöll miðvikudaginn 16.maí n.k. kl. 20.00 og spila við Ægi um réttinn til að komast í 32.liða úrslit. Í 32 liða úrslitunum koma Pepsídeildarliðin inní keppnina.

Svar viđ könnun

07. maí 2012 klukkan 18:26
Hér til hliðar á síðunni hefur verið könnun í ríflega hálft ár. Þar var spurt, hvaða lið gaf Víking Ó leik sinn í fyrsta bikarleik Víkings Ó á ferlinum. Flestir héldu að það hafi verið ÍBÍ og næst flestir héldu að það hafi verið Snæfell. Rétt svar var UMSB og það voru þrír sem svöruðu því rétt.

Ný könnun er komin inn eða er rétt nýkomin inn.