Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Helgi Kristjánsson
  • Stađur: Reykjavík
  • Um mig: Ég er fćddur og uppalin í Ólafsvík og er mikill stuđningsmađur Víkings Ó., Vals og Ipswich í enska boltanum. Hef mikinn áhuga á fótbolta, golfi, músik og mörgu fleiru.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Könnun

Hvađ vinnur Valur Pepsídeildina međ miklum mun?

Leit

LENGJUBIKAR. FRAM - VÍKINGUR Ó 3 - 2

16. apríl 2011 klukkan 14:29

LENGJUBIKARINN
Gervigras Fram
Laugardaginn 16.apríl 2011

Fram - Víkingur Ó   3 - 2  (0 - 2)

0-1  Edin Beslija  (9.mín)
0-2  Edin Beslija  (14.mín)
1-2  Arnar Gunnlaugsson ( 57.mín, víti)
2-2  Samuel Tillen (75.mín)
3-2  Jón Gunnar Eysteinsson (93.mín) 

Rauð spjöld: Guðmundur Magnússon (47.mín, Fram), Samuel Tillen (77.mín, Fram) og Almar Ormarsson (84.mín, Fram).


Í upphafi leiks. Þarna sjást þeir Jóhannes Kristjánsson og Magnús Stefánsson. Þetta var skrítin leikur fyrir Magga enda í stjórn Knd Fram eins og sést á úlpunni sem hann er í. Við hliðina á Magga sitja foreldrar Þorsteins Más og Steinars Más Ragnarssona.

Ég hef sjaldan eða aldrei séð annan eins leik eins og leik Fram og Víkings Ó í dag. Sennilega hefur Fram unnið sinn mesta heppnissigur á knattspyrnuvellinum og þá á ég við í öllum flokkum karla og kvenna, síðan félagið var stofnað. Þetta er kallað rán um hábjartan dag af sumum. Þennan leik átti Víkingur Ó engan vegin skilið að tapa. Eftir frábæra byrjun í leiknum þegar okkur tókst að ná fljótlega tveggja marka forystu bentí lítið til þess að Fram myndi ná nokkru útúr leiknum. En í seinni hálfleik datt allt með þeim sem dottið gat fyrir utan rauðu spjöldin sem þeir nældu sér í. Það fór í skapið á þeirra leikmönnum að lenda undir og það tveimur mörkum. Þeir fóru gjörsamlega á taugum þegar líða tók á seinni hálfleikinn og dómarinn týndi þá af velli. Þeir áttu erfitt með að hemja skapið og því fór sem fór. Annar leikurinn hjá þeim þar sem þeir lenda illilega í rauðu spjöldunum. Það gerðist einnig gegn Val. En snúum okkur að leiknum. Ég var að sjálfsögðu með diktafóninn minn símann með mér. Þetta fannst mér vert að punkta niður:

Byrjunarlið Víkings Ó. Einar Hjörleifsson í marki, Bakverðir þeir Brynjar Kristmundsson og Ragnar Mar Sigrúnarson. Miðverðir Tomasz Luba og Emir Dokara. Á miðjunni spiluðu Eldar Masic, Kristján Óli Sigurðsson, Birgir Hrafn Birgisson og Dominik Bajda. Frammi voru þeir Edin Beslija og Þorsteinn Már Ragnarsson. Á bekknum í dag voru þeir Ingólfur Kristjánsson, Alfreð Már Hjaltalín, Heiðar Atli Emilsson, Helgi Óttarr Hafsteinsson, Steinar Már Ragnarsson, Fannar Hilmarsson og Heimir Þór Ásgeirsson.


Frá leiknum í dag. Fv. Brynjar Kristmundsson, Tomasz Luba og Emir Dokara. Frammarinn á myndinni er Hjálmar Þórarinsson.

7.mín. Kristján Óli Sigurðsson með skot utan af vinstri kanti á fjærhornið en boltinn hafnar yfir slána og í útspark.
9.mín. MARK. Edin Beslija skorar mark eftir flotta stungusendingu frá Þorsteini Má. Edin sendir boltann framhjá úthlaupandi markverði Fram og í netið. 0-1.
14.mín. MARK. Edin Beslija vinnur boltann af markverði Fram sem kominn var lengst útá kant til að spyrna boltanum fram en Edin nær að pressa hann það mikið að hann hættir við og reynir að sóla Edin sem hirðir boltann af honum og sendir boltann af 30 metra færi í opið markið. 0-2.
22.mín. Munar litlu að við komust í 3-0 þegar Einar spyrnir löngum bolta frá markinu og inná vallarhelming Fram, þar sem Edin nær að snúa varnarmenn af sér og komast einn í gegn. En markvörður fram var sekúndubroti á undan honum og nær að afstýra hættunni.
34.mín. Liðin skiptast á að hafa boltann og lítið að gerast. Víkingur Ó hefur leikinn í hendi sér með gott forskot og eru meira með boltann.
38.mín. Þorsteinn Már fær réttilega gult spjald fyrir gróft brot. Frammarinn rýkur í Þorsteinn Má og Kristján Óli skiptir sér af að ósekju og er heppinn að fá ekki líka spjald. Þetta atvik æsir Framliðið svolítið upp. 
42.mín. Fram á aukaspyrnu utan af hægri kanti. Boltinn sendur fyrir og einn þeirra á frekar lausan skalla framhjá markinu vinstra megin. 
Hálfleikur


Frá leiknum í dag.

45.mín. Tvær skiptingar gerðar hjá Víking Ó í hálfleik. Heiðar Atli Emilsson og Helgi Óttarr Hafsteinsson komu inná fyrir Kristján Óla Sigurðsson og Ragnar Mar Sigrúnarson.
47.mín. RAUTT SPJALD. Guðmundur Magnússon leikmaður Fram fær rautt spjald fyrir að traðka á Tomasz Luba innan teigs. Eftir á að hyggja átta ég mig ekki á því hvers vegna var ekki dæmt víti! 
49.mín. Fram í sókn en brjóta gróft á Einari markverði. Boltinn fellur síðan fyrir tærnar á einum þeirra sem rennir boltanum í netið en markið er dæmt réttilega af. Frammarar eru farnir að spila nokkuð gróft.
55.mín. Staðan fer þessa stundina í taugarnar á Frömmurunum og það gengur ekkert upp hjá þeim. Þetta gengur reyndar allt fínt hjá okkur enda 0-2 yfir í leiknum. 
56.mín. Heiðar Atli Emilsson með skot frá vítateigslínunni en beint á markvörðinn. 
56.mín. Eldar Masic fær gult spald.
57.mín. MARK. Arnar Gunnlaugsson minnkar muninn fyrir Fram úr vítaspyrnu eftir að boltanum var skotið uppí hendina á Emir Dokara. Einar kastaði sér í rétt horn. 
63.mín. Frammarar búnir eru búnir að vera í stórsókn. Þeir áttu skot úr þröngu færi í stöngina. Þeir virðast vera að hressast og skapið virðist hjálpa þeim á stað. 
65.mín. Edin kemst inní sendingu milli varnarmanna og leikur inní vítateig en ákveður að senda boltann frekar á Þorstein Má frekar en að skjóta og markvörðurinn nær til boltans á undan Þorsteini . Þarna hefði verið hægt að gera betur.
66.mín. Fram á hornspyrnu. Einar er augljóslega haldið en það kemur ekki að sök því einn Frammarinn skallar boltann yfir markið.
67.mín  Steinar Már Ragnarsson kemur inná fyrir Birgi Hrafn Birgisson. 
70.mín  Fram að koma meira inní leikinn og við liggjum meira til baka. Það getur allt gerst. 
72.mín  Edin rennir boltanum innfyrir vörn Fram á Þorstein Má sem heyjir keppni við markvörðinn um boltann og markvörðurinn nær að vera á undan og hirðir boltann af tánum á honum. 
73.mín. Dominik Bajda á góða sendingu fyrir markið beint á Þorstein Má sem áttar sig of seint á því í hve góðu færi hann var og af Þorsteini hrekkur boltinn framhjá markinu.
74.mín. Edin skallar boltann innfyrir vörn Fram á Þorstein Má sem er í dauða-dauðafæri en hann sópar boltanum yfir þverslána. Þarna átti Þorsteinn að gera betur. 
74.mín. Domink fær réttilega gult spjald fyrir brot.
75.mín. MARK. Fram á aukaspyrnu af 20-25m.færi. Sam Tillen tekur spyrnuna og sendir boltann yfir varnarvegginn og beint á Einar. Á einhvern óskiljanlegan hátt missir Einar frekar auðveldan bolta undir sig og í netið. Það var alveg hræðilegt að horfa á þetta. 2 - 2. 
77.mín. RAUTT SPJALD. Skyndilega stoppar dómarinn leikinn og gefur Sam Tillen leikmanni Fram sitt annað gula spjald fyrir kjaftbrúk við aðstoðardómarann. Þar með erum við orðnir tveimur færri. Ég man ekki eftir nokkrum leik þar sem við höfum verið tveimur fleiri í á ferlinum.
84.mín. RAUTT SPJALD. Almar Ormarsyni leikmanni Fram er sýnt rauða spjaldið fyrir brot á Heiðari Atla Emilssyni. Heiðar Atli fær líka gult spjald fyrir eitthvað sem ég sá ekki. Nú erum við 11 á móti 8 og ég man ekki til þess að það hafi nokkurn tímann gert í sögu okkar að við höfum verið þremur fleiri í nokkrum leik. 
86.mín. Í þessu var Jóhannes bróðir að sýna gömul knattspyrnutilþrif í stúkunni þegar hann sparkaði boltanum til baka. Víkingur sækir stanslaust og Frammarar liggja í skotgröfunum með engan senter og reyna að verja stigið. 
87.mín Skipting hjá Víkng Ó. Heimir Þór Ásgeirsson kemur inná fyrir Dominik Bajda.
93.mín. MARK. Frammarar áttu innkast á eigin vallarhelmingi og allir þeirra leikmenn staddir á eigin vallarhelmingi. Boltinn berst til Jón Gunnars Eysteinssonar sem snýr baki í okkar mark. Hann snýr sér eldsnöggt við og ákveður að skjóta á markið af 60 metra færi. Einar var staðsettur við vítateiginn og átti sér ekki neins ills von þegar Jón Gunnar smellhittir boltann og svífur boltinn þessa löngu leið yfir Einar og í netið hjá okkur. Þvílíkt heppnismark. 
94.mín Steinar Már Ragnarsson Víking Ó fær boltann einn og óvaldaður vinstra megin í teignum og hittir ekki markið úr dauðafæri. 


Úr leiknum. Hér sjást tveir Frammarar brjóta á Víkingi.

 Víkingur Ó sýndi það og sannaði í dag að liðið spilar eins og ég hef oft sagt áður, á Pepsídeildargetu. Fram olli mér vonbrigðum með óþarfa grófum leik og hvað leikmennirnir voru í miklu ójafnvægi. Þetta þurfa þeir að laga fyrir mót ef ekki á illa að fara. Tvö seinni mörk þeirra áttu aldrei að verða mörk. Einar átti að taka báða þessa bolta og ég veit að Einar er fyrsti maður til að samþykkja það. En hann hefur varið svo mörg víti fyrir okkur í gegnum tíðina að þetta verður svo sannarlega fyrirgefið í snatri. Hann ver bara næsta víti í staðinn, en vandamálið er það að við ætlum ekkert að fá á okkur vítí í sumar!

Það er eitt atriði sem ég vil endilega að leikmenn okkar lagi, en það eru fyrirgjafirnar frá köntunum. Það fara of margar fyrirgjafir aftur fyrir mark. Þeir sjó um fyrirgjafirnar ættu að taka eina æfingu í þær. Endilega að miða á boltann þannig að fyrirgjafirnar leiti meira til baka en áfram. Helst að miða alltaf á vítapunktinn.

Í dag tilnefni ég þessa þrjá sem bestu menn okkar í leiknum, Edin Beslija, Þorsteinn Már Ragnarsson og Emir Dokara.

Næsti leikur Víkings Ó verður æfingaleikur gegn Pepsídeildarliði Keflavíkur á Hellissandsvelli á sumardaginn fyrsta. Klukkan hvað veit ég ekki ennþá.  

 
Hákon Ţorri
Þetta voru ömurleg úrslit. En ég hef fulla trú á að strákarnir taki þennan leik til skoðunnar og lagi það sem fór úrskeiðis. Hef ekki trú á öðru.
#1
16. apríl 2011 klukkan 21:11
 
helgi
Já Hákon, þetta er einn af þessum leikjum þar sem betra liðið tapar ósanngjarnt. En svona er fótboltinn.
#2
17. apríl 2011 klukkan 11:57

Skrifa athugasemd