Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Helgi Kristjánsson
  • Stađur: Reykjavík
  • Um mig: Ég er fćddur og uppalin í Ólafsvík og er mikill stuđningsmađur Víkings Ó., Vals og Ipswich í enska boltanum. Hef mikinn áhuga á fótbolta, golfi, músik og mörgu fleiru.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Könnun

Hvađ vinnur Valur Pepsídeildina međ miklum mun?

Leit

Valitorbikarinn. Valur- Víkingur Ó 2-1 eftir framlengingu

26. maí 2011 klukkan 00:05

Valitorbikarinn
Vodafone völlurinn
25.maí 2011 kl. 19.15

Valur - Víkingur Ó  2-1 eftir framlengingu

1-0 Jón Vilhelm Ákason  (11.mín)
1-1 Brynjar Kristmundsson (43.mín)
2-1 Haukur Páll Sigurðsson (116.mín)

Jæja hvað get ég skrifað. Bæði liðin sem mér þykir svo vænt um, mættust í kvöld í bikarkeppni KSÍ í 32.liða úrslitum. Fyrir leik bjuggust margir við að Valur myndi vinna þennan leik nokkuð auðveldlega og sem dæmi um það saknaði ég margra andlita úr stuðningsmannahópi Vals í kvöld. Mjög líklega hafa þeir talið Víking Ó verða Val auðveld bráð. En annað kom heldur betur á daginn. Mér finnst ekkert gaman að segja það við valsara að í fyrri hálfleik var Valur sundurspilað í fyrsta sinn í langan tíma. Það var bara ekki heil brú í leik þeirra að mér fannst. Var það vanmat? Ég vona ekki því það hefur ekkert lið efni á að vanmeta lið eins og Viking Ó sem spilar á Pepsídeildargetu. Það má eiginlega segja það að Víkingur Ó hafi haft undirtökin í fyrstu 75 mínúturnar en Valur síðasta korterið. Síðan hafi liðin verði jöfn í fyrri hluta framlengingarinnar en Valur sígið frammúr síðustu 10 mínúturnar.  Það má líka segja það að Valsmenn hafi verið gríðarlega heppnir að ná að skora sigurmarkið áður en til vítaspyrnukeppni kom, því Víkingsliðið er uppfullt að frábærum vítaskyttum. En ef Vikings Ó liðið nær að spila svona í deildinni þá verður ekki langt að bíða þar til þeir verða búnir að ná toppsætinu. Liðið þarf reyndar að skerpa aðeins betur sóknarleikinn og fara að skora fleiri mörk í leikjunum sínum en aðeins eitt. Og eins og þeir segja í American Idol, "Víkingur Ó eru tilbúnir og þeir ætla að vinna keppnina". En staða liðsins í 1.deildinni segir ekki neitt um hvað liðið getur. Botnsætið munu þeir kveðja fljótlega. Meiðsli lykilmanna hefur verið að trufla liðið. En í kvöld spilaði Víkingur Ó eins og við þekkjum þá best. Eða nákvæmlega eins og þeir spiluðu í fyrrasumar þegar þeir unnu hvern leikinn á fætur öðrum.


Þessa mynd tók Þorsteinn Ólafs á því augnabliki þegar Einar ver vítaspyrnu Guðjóns Péturs Lýðssonar í framlengingunni.

Ég veit ekki hvað er að Valsliðinu. Þetta er ekki í fyrsta sinn í sumar sem þeir eru í 1.gír. Svona kraftur og dugnaður og knattspyrnuleg geta eins er í Víkings Ó liðinu setur mörg lið í vanda þegar Vikingarnir detta í stuð eins og í kvöld. Valur átti bara engin svör við þessari spilamennsku og hvernig sem þeir afsaka sig þá er það ekki marktækt. Valur verður að skoða þennan leik á spólu og leita lausna, því það má búast við að önnur lið í Pepsídeildinni taki Víking Ó til fyrirmyndar þegar þeir eru að spá í hvaða taktík eigi að beita gegn Val. Þegar leikmenn Vals töpuðu boltanum voru menn enn í hægaganginum og treystu á að einhver samherji ynni boltann fyrir þá. En hjá Víking Ó var þetta þannig að þegar boltinn tapaðist fór allt liðið í gang til að reyna að vinna boltann aftur.  


Þessa mynd tók Þorsteinn Ólafs einnig. Þessi mynd er af marki Víkings Ó. Brynjar Kristmundsson tekur aukaspyrnu og "smyr" boltann efst upp við markvinkilinn.

Það má segja það að allt Vikingsliðið hafi spilað vel í kvöld. Ef á að taka einhverja leikmenn útúr sem bestu leikmenn verð ég alveg mát. En ég ætla að reyna og ég er alveg 100% viss um að þar eru ekki allir sammála mér í því. Ég ætla að útnefna þessa þrjá sem þrjá bestu í kvöld; Edin Beslilja, spilaði óaðfinnanlega og ég hef sjaldan séð hann eins góðan. Þorsteinn Már Ragnarsson, var sí-ógnandi og hélt varnarmönnum Vals við efnið og var allt í öllu í sóknarleiknum. Einar Hjörleifsson, varði nokkrum sinnum gríðarlega vel og svo tók hann víti frá gríðarlega öruggri vítaskyttu Valsmanna Guðjóni Pétri Lýðssyni. Síðan var mjög ánægjulegt að sjá að Eldar Masic er að komast í sitt gamla góða form eftir meiðsli og það sama má segja um Heiðar Atla Emilsson. Brynjar Kristmundsson var líka að spila virkilega vel í kvöld eins og Helgi Óttar Hafsteinsson. Aðrir leikmenn stóðu fyllilega fyrir sínu og rúmlega það.

Hjá Val fannst mér Matthías Guðmundsson bestur. Haukur Páll Sigurðsson og Sigurbjörn Hreiðarsson komu honum næstir. Einnig var Ingólfur Sigurðsson góður.

Í lokin þá vil ég segja það að þessi leikur var frábær skemmtun fyrir áhorfendur og þeir sem mættu ekki á völlinn verða bara að bíta í það súra!

Í kvöld urðu þáttaskil þegar í fyrsta skipti var útvarpað í gegnum netið frá leik Víkings Ó. Gunnar Örn Arnarson lýsti leiknum gegn Val og þvílíkri snilld að annað eins hefur ekki heyrst. Hann er með mjög góða útvarpsrödd. 

Nokkrir ósáttir stuðningsmenn Víkings Ó höfðu á orði eftir leikinn að dómaratríóið hafi borið meiri virðingu fyrir Valsmönnunum, en leikmenn Víkings Ó. gerðu. Ef það er satt þá verða þessir dómarar að fara í naflaskoðun. En mín skoðun er sú að mér fannst dómgæslan í góðu lagi í kvöld, en þeir hefðu mátt sleppa öllum spjöldum á liðin mín!!!!! 

Næsti leikur Víkings Ó verður næsta laugardag þann 28.maí kl. 14.00 gegn liði Gróttu. Eftir tapið gegn Val í gær er sú staða komin upp að nú getur liðið einbeitt sér að fullu að 1.deildinni. Þar er verk að vinna upp sex stiga forskot efstu liðanna og eru 60 stig eftir í pottinum sem er talsvert.

Í venjulegum leiktíma voru 4 fjörur færi liðanna sýn í sjónvarpinu. Tvö þeirra gáfu mörk. Í framlengingunni áttu Valsmenn fleiri færi og þá sérstaklega í seinni hálfleik framlengingarinnar. Mér taldist til skv. því sem sýnt var í sjónvarpinu að Valur hafi fengið sjö færi en Víkingur Ó tvö. En reyndar saknaði ég þess að fá ekki að sjá fleiri færi frá Víking Ó sem ég man eftir, en svona er þetta oft. Ég man einhverju sinni eftir markasyrpum úr efstu deildinni á þeim tíma þegar ég starfaði hjá Val að við vorum að spila á Akureyri gegn Þór eða KA og áttum helling af færum. En það gleymdist að sýna þau í sjónvarpinu en tvö, þrjú,fjögur færi mótherjanna voru sýnd og það leit út fyrir að Valur hafi verið mun slakari aðilinn í leiknum.  

Næsti leikur Vals verður gegn Breiðablik næsta sunnudag 29.maí kl. 19.15 á Vodafonevellinum. 

Vonandi vinna bæði liðin.  




Skrifa athugasemd