Futsal: Fylkir - Víkingur Ó 3-4
03. desember 2011 klukkan 14:41
Pepsídeildarlið Fylkis var næsti mótherji okkar í Futsal á þeirra heimavelli. Leikurinn varð gríðarlega jafn og spennandi, það spennandi að hann var ekki fyrir viðkvæmar sálir. Okkur tókst að vinna þennan leik með einu marki í leik sem gat dottið báðum megin en sem betur fer fyrir okkur datt sigurinn okkar megin.
Sem sagt, leikurinn fór 3-4 með sigri okkar. Samt byrjaði leikurinn ekki vel fyrir okkur, því snemma í leiknum gerðu leikmenn Fylkis tvö mörk gegn okkur á stuttum tíma eftir að hafa í bæði skiptin unnið boltann af þremur sækjandi leikmönnum Víkings Ó og brunað upp gegn fámennri vörn okkar. Þrátt fyrir þessa vondu stöðu var maður alveg rólegur. Og hvers vegna var maður rólegur? Jú, Fylkismenn komust varla fram fyrir miðju, þvílíka pressu settu leikmenn Víkings Ó á þá þegar þeir unnu boltann. Og áður en dómararnir blésu til hálfleiks hafði Alfreð Már Hjaltalín komið boltanum tvisvar í netið hjá þeim og staðan því 2-2 í hálfleik.
Í seinni hálfleik kom miklu ákveðnara og sterkara lið til leiks hjá Fylki. Nú gekk þeim betur að svara okkar taktík með því að gera nákvæmlega alveg eins og við, að hápressa. Það voru ekki margar mínútur liðnar af seinni hálfleiknum þegar Guðmundur Magnússon kemur okkur í 2-3 með hörkuskoti úr teignum í stöngina og inn. En Fylkir gafst ekki upp og um miðjan hálfleikinn komst einn þeirra einn gegn Einari markverði, en Einar sá við honum og varði skotið hans. En boltinn hrökk aftur til þessa leikmanns sem náði að renna boltanum undir Einar og í netið. Staðan þar með orðin 3-3 og útlitið þannig næstu mínúturnar að leikurinn muni enda með jafntefli.
En Guðmundur Steinn Hafsteinsson var ekki á því að taka ekki öll þrjú stigin sem í boði voru og skoraði gott mark þegar ein og hálf mínúta voru eftir og kom okkur yfir, 3-4 og þessari stöðu héldum við út, þrátt fyrir harðar sóknaraðgerðir Fylkismanna.
Þessum stórskemmtilega Futsal leik lauk því með sigri okkar manna og þar með erum við með fullt hús stiga eða 9 stig og trónum á toppnum í riðlinum þegar keppni er hálfnuð. Þrír síðustu leikir okkar verða allir spilaðir í Ólafsvík og má segja að úrslitakeppnin í byrjun janúar blasi við.
Næsti leikur okkar verður í Ólafsvík laugardaginn 10.des kl. 12.00 (hádeginu) og síðan kemur sá næsti og hann verður líka í Ólafsvík miðvikudaginn 14.des kl. 19.00 gegn Hvíta Riddarinn/Aftureldingu og svo mæta Fylkismenn til Ólafsvíkur laugardaginn 17.desember kl. 13.00.

Antonio Grave
Afhverju eru svona finar myndir úr nýju mydarvélinni ég sé allt grátt?????????????????????????
#1
04. desember 2011 klukkan 16:55
helgi
Sæll Antonio. Gaman að sjá þig hér. Ég hef ekki sett eina einustu mynd inn hér vegna vandræða með stýrikerfið. Það hefur tekið mig á annan klukkutíma að bíða eftir að myndin fari inná síðuna. Þá þolinmæði hef ég stundum en ekki alltaf. Ég setti myndir inná Facebooksíðuna mína í staðinn. Vonandi fara þeir á bloggar.is að laga stýrikerfið svo þetta verði eins og hjá mönnum. Ég er reyndar farinn að velta því fyrir mér hvort ég eigi að fara með síðuna eitthvað annað. Það kostar kannski eitthvað, hve mikið veit ég ekki. En ég sef rólegur yfir þessu ennþá. kv. Helgi
#2
06. desember 2011 klukkan 17:28