Auglýsing

Klukkan

Prófíll

  • Nafn: Helgi Kristjánsson
  • Stađur: Reykjavík
  • Um mig: Ég er fćddur og uppalin í Ólafsvík og er mikill stuđningsmađur Víkings Ó., Vals og Ipswich í enska boltanum. Hef mikinn áhuga á fótbolta, golfi, músik og mörgu fleiru.

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...

Innskráningar kubbur

Könnun

Hvađ vinnur Valur Pepsídeildina međ miklum mun?

Leit

Ţorsteinn Már Ragnarsson valinn í ćfingahóp fyrir U-21 árs landsliđiđ.

05. janúar 2012 klukkan 00:39

Eyjólfur Sverrisson landsliðsþjálfari U-21 árs landsliðsins hefur valið 29 manna hóp til æfinga hjá U-21 árs landsliðinu. Einn af þeim sem hann velur er Þorsteinn Már Ragnarsson okkar fyrrum leikmaður. Það er ekki hægt annað en að óska Þorsteini til hamingju með þennan áfanga sem er stór. Einnig vil ég hæla Eyjólfi fyrir þetta val. En ein spurning sækir á mig. Hvers vegna var Þorsteinn ekki valinn fyrr, á meðan hann var leikmaður Víkings Ó.? Það má ekki skipta máli að leikmenn séu valdir til æfinga hjá landsliði nema þeir séu í "réttu" liði. Ef svo er hjakkar landsliðið ávallt í sömu förunum og kemst ekkert áfram. Það eru öll lið á landinu sem halda úti öflugu unglingastarfi að framleiða góða leikmenn.

Ef við skoðum ensku úrvalsdeildina í dag. Hvar voru íslensku leikmennirnir þar aldir upp? Heiðar Helguson kemur frá Dalvík, Eggert Gunnþór Jónssson frá Austra Eskifirði, Grétar Steinsson frá KS á Siglufirði og Gylfi Þór Sigurðsson frá Breiðablik. Í 1.deildinni eru t.d. Aron Einar Gunnarsson frá Þór á Akureyri, Ívar Ingimarsson kemur frá Súlunni á Stöðvarfirði og Hermann Hreiðarsson kemur frá ÍBV í Vestmannaeyjum.

Þessi upptalning sýnir það að úti á landi geta leynst sterkir leikmenn fyrir landslið. Og þeir leynast þar. Gott dæmi um lið sem hefur skapað marga góða og sterka leikmenn er Völsungur frá Húsavík. Einnig ÍA. 

En leikmennirnir eiga að eiga sjens á landsliðssæti þó þeir spili ekki með liðum á höfuðborgarsvæðinu. Ef getan er til staðar.

Skrifa athugasemd